Nýliðaferð 4x4 í Strút 24-25 nóv 2007

Ferðasögur
Myndir
Þátttakendur
GPS
Kort
Spjall
Skálinn
Mýrdalsjökull
Vegasafn f4x4
Helgina 24-25 nóvember verður farin nýliðaferð í Strútsskála á Mælifellssandi. Fararstjórar verða Einar Kjartansson (s. 690 3307) og Bessi Aðalsteinsson.

Það er fullbókað í ferðina. Þeir sem skrá sig hér eftir verða á biðliasta

Þátttökugjald er kr. 4000 á mann og 1000 krónur fyrir hvern bíl. Sá hluti verður ekki endurgreiddur ef menn hætta við. Innifalið í galdinu er gisting í eina nótt og sameiginleg máltíð á laugardagskvöldið. Fjöldi þátttakenda takmarkast við 10 bíla, auk fararstjóra.

Áformað er að leggja af stað frá Hlíðarenda (bensínstöð N1) á Hvolsvelli, klukkan 9:30 að morgni laugardags. Ef veður og færi leyfa, verður farið yfir Mýrdalsjökul, frá Sólheimaskála. Annars verður farið um Fljótshlíð og Mælifellssand. Margar leiðir koma til greina til heimferðar, m.a. Öldufellsleið niður á Mýrdalssand.

Kröfur um hjólbarðastærð miðast við að bílarnir hafi sambærilega getu til að fljóta á snjó og fullvaxnir jeppar á 38" hjólbörðum. Ætlast er til þess menn fari að fyrirmælum fararstjóra varðandi loftþrýsting í dekkjum, og að þeir séu reiðubúnir til að aka með 3 psi í dekkjum.

Stefnt er að því að nota rás 48 á VHF í ferðinni. Frekari upplýsingar fást hjá fararstjórum eða á skrifstofu 4x4, í síma 568 4444.

Síðast uppfært 28. Nóvember 2007.