3f Austfirðir 8. júlí 9. júlí 10. júlí 11. júlí 12. júlí 13. júlí 14. júlí |
Eftir morgunverð sigldi
Sigfús Vilhjálmsson útvegsbóndi og hreppstjóri með okkur yfir Mjóafjörð.
Gengið var eftir vel stikaðri leið í Miðstrandarskarð í fjallinu fyrir
ofan Neskaupstað. Gangan þangað upp tók rétt um þrjá tíma. Þaðan var hringt í
Helgu að sækja okkur.
Rétt eftir að við vorum komin niður komu Helga og Berta og fóru með okkur heim til
Bertu þar sem við þáðum veitingar. Eftir það skildu leiðir. Við Árni ókum um Öxi til
til Reykjavíku með viðkomu við Breiðamerkurlón. Veskið sem ég hafði "týnt" fanst
í úlpuvasanum á leiðinni. Við komum til Reykjavíkur rétt eftir miðnætti, þar með
lauk frábærlega vel heppnaðri ferð.
-Einar
Myndirnar stækka ef smellt er á þær |